Sveinbjörg.is


Gluggafilmur filmur sandblástursfilmur sérgerðar filmur sérhannaðar filmur gluggalímmiðar límmiðar stickers films windowfilms window shades

Sveinbjörg


Gluggafilmur filmur sandblástursfilmur sérgerðar filmur sérhannaðar filmur gluggalímmiðar límmiðar stickers films windowfilms window shades







EnglishIcelandic

Íslensk hönnun í hæsta gæðaflokki

Sveinbjörg Hallgrímsdóttir er myndlistamaður og stofnandi og annar eigandi vinnustofunnar Svartfugl og Hvítspói sem staðsett er í miðbæ Akureyrar við Ráðhústorg og til húsa í Brekkugötu 3a (bakhús). Þar er verkstæði og sýningarsalur sem Sveinbjörg og Anna Gunnarsdóttir, textíllistakona, reka í sameiningu.

Sveinbjorg.is er vefsíða með upplýsingum um Sveinbjörgu sem og listi yfir vörur sem unnar eru upp úr listaverkum Sveinbjargar s.s. falleg gjafakort og sérhannaðar filmur fyrir glugga eða veggi ásamt ullarteppum, hjörtum og krönsum úr plexígleri, servéttum, bakkar úr birkivið, löberar í tveimur stærðum og kertastjakar úr stáli. Nýju postulínsbollarnir með mynstrum Sveinbjargar; garðveislunni sívinsælu, kransarnir og NÝTT mynstur með krummum hefur einnig vakið mikla athygli og fást þeir nú hjá söluaðilum okkar um land allt.

Filmurnar eru sívinsælar, enda auðveldar í uppsetningu og fallegar í glugga eða á öðrum sléttum flötum eins og veggjum. Sérhönnuðu filmurnar hafa notið sívaxandi vinsælda og er hægt að nálgast upplýsingar um þær undir hnappnum vefverslun - sérgerðar filmur. Vert er að benda á að filmurnar henta í raun á alla slétta fleti, en ekki eingöngu glugga eða veggi - skemmtilegt að leika sér með samsetningu þeirra.

Hér á síðunni er einnig hægt að nálgast myndir af verkum Sveinbjargar og hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .


 

 

Myndband sem sýnir uppsetningu á filmu er að finna á Youtube: http://www.youtube.com/watch?v=JtlUBwm-r4Y

 
Sveinbjörg - info@sveinbjorg.is
RocketTheme Joomla Templates